24/06/2026
Vinnueftirlitið stendur nú fyrir vitundarvakningunni Ekki treysta á heppni sem er ætlað að minna á viðeigandi forvarnir og notkun fallvarna en fall úr hæð er ein algengasta orsök banaslysa við vinnu hér á landi.
Forðist vana og ekki treysta á heppni! Notið ávallt viðeigandi fallvarnir og öryggisbúnað því fall við vinnu getur verið dauðans alvara.
Sjá nánar 👇
https://island.is/s/vinnueftirlitid/ekki-treysta-a-heppni
09/06/2026
📖 Skólaþræðir, tímarit samtaka áhugafólks um skólaþróun, birtir nú s*x greinar um samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um vinnustaðamenningu í skólum.
Tveir grunnskólar og þrír leikskólar tóku þátt í verkefninu sem beindist að því að efla heilbrigða vinnustaðamenningu, öryggi og vellíðan starfsfólks í skólunum. Verkefnið þótti skila góðum árangri og er það von þeirra sem að því stóðu að aðferðirnar nýtist öðrum ✨
Í fyrstu greininni gerir Sigrún Gunnarsdóttir prófessor, sem stýrði verkefninu, grein fyrir því í heild sinni. Í hinum greinunum fjallar hver skóli fyrir sig um hvernig tekist var á við verkefnið og hverju það skilaði.
Tímaritið má nálgast hér 👇
Skólaþræðir – Tímarit Samtaka Áhugafólks um Skólaþróun
Greinar Leikskólinn Heiðarborg: Hnitmiðuð vinna með samskipti styrkir heilbrigða vinnustaðamenningu 4. júní, 2026 Jóhanna Benný Hannesdóttir og Helena Sigurdórsdóttir Í þessari grein lýsa höfundar þátttöku leikskólans Heiðarborgar í Reykjavík í samstarfsverkefni Vinnueftirl...
26/05/2026
✨ Vinnueftirlitið leitar að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum á Austurlandi.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Egilsstöðum.
Endilega kynntu þér málið 👇
Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á Austurlandi? | Vinnueftirlitið
Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Saman stuðlum vi...
22/05/2026
Vissir þú að vinnustöðum með 10 starfsmenn eða fleiri er skylt að hafa:
👷♂️ Öryggistrúnaðarmann (valinn af starfsfólki)
🛠️ Öryggisvörð (tilnefndur af atvinnurekanda)
Ef starfsmenn eru 50 eða fleiri þarf að stofna:
👥 Öryggisnefnd
Öll taka virkan þátt í vinnuverndarstarfi vinnustaðarins en til að það skili árangri þarf það að byggja á samvinnu atvinnurekanda og starfsfólks.
⚠️ Tilkynna þarf Vinnueftirlitinu um öryggistrúnaðarmann, öryggisvörð og stofnun öryggisnefndar. Tilkynninguna má nálgast hér 👇
Tilkynning um öryggistrúnaðarmann, öryggisvörð eða stofnun öryggisnefndar | Ísland.is
Tilkynning til Vinnueftirlitsins um kosningu öryggistrúnaðarmanns og tilnefningu öryggisvarðar eða stofnun öryggisnefndar.
19/05/2026
🌞 Vinnueftirlitið hvetur atvinnurekendur og starfsfólk vinnustaða til að hlúa vel að ungmennum sem eru að hefja sumarstörf.
⚠️ Gæta þarf sérstaklega vel að þjálfun þeirra og fræðslu en rannsóknir sýna að þeim er hættara en öðru starfsfólki við að lenda í óhöppum og vinnuslysum.
Á vef Vinnueftirlitsins er að finna veggspjald, byggt á reglugerð um vinnu barna og unglinga. Þar má sjá yfirlit yfir leyfileg störf ungmenna og vinnutíma.
Endilega kíkið á 🤝
Vinna barna og unglinga | Ísland.is
Atvinnurekendur bera ábyrgð á að skapa ungmennum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi og gæta þess að verkefnin sem þeim eru falin hæfi aldri þeirra og þroska.
05/05/2026
🤸 Vinnueftirlitið leitar að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.
Þekking eða reynsla af áhrifum vinnu á stoðkerfi starfsfólks er kostur.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar 👇
04/05/2026
🧱 Vinnueftirlitið leitar að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum. Þekking og reynsla á sviði mannvirkjagerðar er kostur.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar 👇
Viltu taka þátt í að efla öryggi og vellíðan á vinnustöðum? | Vinnueftirlitið
Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Saman stuðlum vi...
01/05/2026
✨Heilbrigð vinnustaðamenning leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks. Í meðfylgjandi myndbandi er fjallað um vinnustaðamenningu og áhrif hennar á líðan og árangur starfsfólks og vinnustaða.
Fjallað er um áhrifaþætti og kosti heilbrigðrar vinnustaðamenningar og hlutverk og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks við að skapa heilbrigt vinnuumhverfi.
Tökum höndum saman og sköpum örugga og góða vinnustaði sem ná árangri 🤝
Vinnueftirlitið
7 likes. "Hvað er vinnustaðamenning?"
30/04/2026
Vinnumhverfið hefur áhrif á starfsfólk frá toppi til táar 🙆♂️🦶
Góð líkamsbeiting og regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á heilsu og líðan í dag og til framtíðar ✅
Ólíkar áskoranir fylgja ólíkum störfum og því er mikilvægt að huga reglulega að því hvernig líkamanum er beitt við vinnu.
Á vefsíðunni www.hhht.is, sem stendur fyrir Hugsum um: Höfuð, herðar, hné og tær við vinnu, er meðal annars að finna fræðslu um stoðkerfi og stoðkerfisverki og hvað er til ráða til að draga úr einkennum frá stoðkerfi í tengslum við ýmiskonar vinnu.
Endilega lestu þér til um góða líkamsbeitingu við vinnu því öll viljum við koma heil heim, í dag og starfsævina á enda 🥰