Grundarfjarðarbær

Grundarfjarðarbær

Share

Grundarfjörður er fallegur bær á norðanverðu Snæfellsnesi. Samfélagið er þekkt fyrir kraft og frumkvæði og félagslíf er gott.
Íbúar eru um 900 talsins.

Grundarfjarðarbær og JAE ehf. gera viljayfirlýsingu um uppbyggingu ferðaþjónustu 23/06/2026

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og JAE ehf. um mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði, sem felur í sér að hluthafar JAE ehf. muni vinna að stofnun félags um uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði.

👇 Sjá frekari upplýsingar í frétt hér að neðan.

Grundarfjarðarbær og JAE ehf. gera viljayfirlýsingu um uppbyggingu ferðaþjónustu Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og JAE ehf. um mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði, sem felur í sér að hluthafar JAE ehf. muni vinna að stofnun félags um uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfir....

OPIÐ KALL Á BARNÓ 2026 – BEST MEST VEST! 22/06/2026

⭐️ Barnó 2026 - Best Mest Vest!

⭐️ Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og nú leitum við að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára.

👇Sjá frekari upplýsingar í frétt hér að neðan.

OPIÐ KALL Á BARNÓ 2026 – BEST MEST VEST! Barnamenningarhátíð Vesturlands

Ljósmyndasamkeppni 2026 22/06/2026

📸 Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2026 📸

📸 Þemað er ár er „menning“

👇 Sjá frekari upplýsingar um ljósmyndasamkeppnina hér að neðan.

Ljósmyndasamkeppni 2026 Þema keppninnar í ár er „menning“

Photos from GRÓ Land Restoration Training Programme under the auspices of UNESCO's post 19/06/2026

🍀 Landgræðusluskóli GRÓ kíkti í heimsókn í vikunni. Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála tók á móti hópnum og fór yfir það hvernig Grundarfjarðarbær er byrjaður á og stefnir í auknum mæli að því að leysa vandamál tengd ofanvatni með blágrænum ofanvatnslausnum.

🍀 Takk kærlega fyrir komuna!

19/06/2026

🇮🇸🇫🇷 17. júní haldinn hátíðlegur í Paimpol, Frakklandi.

Þjóðhátíðardagur Íslendinga var haldinn hátíðlegur í Paimpol. Meðlimir Grundapol í Paimpol komu saman við vináttutré sem plantað var árið 2024 í tilefni af 20 ára afmæli vinabæjarsambands Paimpol og Grundarfjarðar.

Vinabæjarfélagið Grundapol í Grundarfirði var stofnað 2. apríl 2012 með það að markmiði að rækta söguna og söguleg tengsl milli Grundarfjarðar og Paimpol, auðga menningarlíf bæjanna tveggja, efla samskiptin og fjölga gestakomum.

Grunda.Pol

17. júní haldinn hátíðlegur 18/06/2026

🇮🇸 17. júní var haldinn hátíðlegur í Grundarfirði. Dagskráin var fjölbreytt og spennandi.

🇮🇸 Grundarfjarðarbær vill þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á hátíðarsvæðið.

🇮🇸 Myndir og umfjöllun í fréttinni hér að neðan. 👇

17. júní haldinn hátíðlegur Myndir neðst í frétt

15/06/2026

Hátíðarhöld í Grundarfirði 17. júní 2026

🥳Skrúðganga
🤡Andlitsmálning
🏰Hoppukastali
🔵 Loftboltar
🎶 Söngatriði

Og margt fleira í boði 😎🌞

Bæjarstjórn tekin til starfa - Birkir Jón Jónsson nýr bæjarstjóri 15/06/2026

Nýkjörin bæjarstjórn Grundarfjarðar kom saman til fundar fimmtudaginn 11. júní. Á fundinum var skipað í ráð og nefndir og var Fannar Þór Þorfinnsson kjörinn forseti bæjarstjórnar og Aðalsteinn Jósepsson formaður bæjarráðs.

Jafnframt var samþykkt að Birkir Jón Jónsson verði ráðinn bæjarstjóri. Hann hefur hafið störf.

👇 Hægt er að sjá ráð og nefndir í fréttinni hér að neðan.

Bæjarstjórn tekin til starfa - Birkir Jón Jónsson nýr bæjarstjóri Fyrsti bæjarstjórnarfundur var 11. júní.

Want your business to be the top-listed Government Service in Grundarfjörþur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Borgarbraut 16
Grundarfjörþur
350

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 14:00