01/07/2026
Sagði einhver salat?... nú þá förum við bara í garðinn! Á Læk ræktum við okkar eigið grænmeti... graslauk, steinselju, klettasalat, tómata og ég veit ekki hvað og hvað 😎 Í hádeginu verðu sem sagt kjúklingasalat með allskonar, bökunarnámskeið eftir hádegi og að sjálfsögðu göngutúrinn á sínum stað.
Lækur... og kroppurinn blómstrar! 😎🎵☀🌻🥰
15/06/2026
Við höfum ákveðið að fresta árlegu grillveislunni vegna veðurs, ný dagsetning kemur fljótlega!
12/06/2026
Minnum á grillið á Dvöl 16. júní. Allir velkomnir... það hangir skrásetningarblað hér í forstofunni. ☀🌻❤
12/06/2026
Já já það er bongó blíða hér á Læk í dag... básúnur og trommur og ég veit ekki hvað og hvað! Tai Chi með Kris kl. 11. Eggja pítur í matinn for pítseik! Eftir hádegi ætlum við svo að taka góða göngu í sólinni. Eftir það verða bakaðar pönnukökur út á sólpalli og kaffikannan færð út.
Lækur... lifandi staður! ☕🎵❤☀😎🐕🥞🎵🌴
05/06/2026
Það er allt að gerast á Læk, krónublöðin á tómatplöntunum eru að opnast og gefa okkur þessa skínandi fallegu tómata. Hér er fólk sem vinnur hörðum höndum við að gera umhverfið okkar svona fallegt.
Í dag verður tai chi klukkan 11. Burrito með baunum og grænmeti í hádeginu og pönnukökur með rjóma um kaffileytið. Á Læk er gott að lifa, njóta, spjalla, hlusta á tónlist og láta sér líða vel.
Lækur... beztur í allskonar! 🍅☕🎵🐕❤️
03/06/2026
Lækur er í blússandi fíling í dag eins og alla daga! Tai chi klukkan akkúrat rúmlega 11, gríshnakkar í gyros með hrísgrjónum og salati í hádeginu. Eftir hádegi förum við út í göngu í góða veðrinu. Bökunarnásmekiðið verður svo auðvitað á sínum stað um eitt leytið.
Lækur... alltaf ljúfur! 🐾🐕🎵☕️
01/06/2026
🌿 Júní er genginn í garð og það verður nóg um að vera hjá okkur í vikunni! 🌿
Í dag verður Tai Chi á sínum stað rétt fyrir hádegi. Í hádeginu verðum við þjóðleg og fáum okkur soðinn fisk með kartöflum og lauksmjöri. 🐟🥔
Eftir hádegi verður síðan gangan á sínum stað eins og vanalega. 🚶♀️🚶♂️
🎨 Á morgun verður List og Sköpun í Nýsköpunarsetrinu.
Þar fáum við að læra á hitavélina og merkja föt og bolla. Ef ykkur langar að koma og taka þátt endilega komið með bómullarbol, peysu og/eða bolla (helst hvítan) til að skreyta og gera að ykkar eigin.
🌱 Í vikunni fer garðyrkjuhópur Lækjar svo formlega af stað. Ert þú búin/n að skrá þig?
Þátttakendur fá sitt eigið ræktunarpláss þar sem þeir geta ræktað grænmeti í sumar og tekið uppskeruna með sér heim. 🥬🥕🍅
Það er alltaf nóg um að vera á Læk! 💚
29/05/2026
Það er góður andi hér á Læk í dag... eins og alla daga. Tai chi um 11 leytið, kjúklingaleggir í hádeginu og alltaf heitt á könnunni. Svo kannski hendum við íslenzkar pönnsur eftir hádegi... hver veit.
Lækur... alveg meiriháttar!
27/05/2026
Miðvikudagur er mættur í hús og við erum hér með heitt kaffi á könnunni, leikfimin var að klárast, það verður svínakjötsréttur í hádeginu með grjónum. Eftir hádegi ætlum við að skella í cheerios kökur í bakstursnámskeiðinu.
Allir velkomnir hlökkum til að sjá ykkur :)
Myndin af kanilsnúðum sem við gerðum ekki fyrir svo löngu...