23/06/2026
💚 Næstkomandi sunnudag, 28. júní, fagnar þjóðgarðurinn 25 ára afmæli sínu!
Af því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag og bjóðum gestum og gangandi í afmælisveislu á Malarrifi.
Frá kl. 12:00 til 15:00 verður fjölbreytt dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á dagskrá verður meðal annars:
🥾Fræðsluganga með landverði kl. 13:00 frá Malarrifi að Lóndröngum fyrir áhugasama.
🌱Endurbætt barnasvæði á Malarrifi verður formlega tekið í notkun.
🥾Kynning á verkefninu Ungi landvörðurinn.
🍰Leikir, léttar veitingar og notaleg samvera fyrir alla fjölskylduna.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Malarrifi og fagna þessum tímamótum saman! 🎉🎉
22/06/2026
🩵The Glacier Project framhaldssaga.
Í þessu myndbandi segja ljósmyndararnir Elmar Janse og Merel Klomp frá ferðalagi sínu um Snæfellsnes á meðan sýningin þeirra, The Glacier Project, stóð yfir í þjóðgarðsmiðstöðinni í vetur.
Hér deila þau hughrifum sínum af síbreytilegu landslagi svæðisins og þeirri kyrrð og fegurð sem þau upplifðu á meðan dvöl þeirra stóð í Arctic Canvas
🩵Falleg skot af vetrarumhverfinu á Snæfellsnesi.
Capturing the Arctic Elements | Iceland in Winter
A cinematic winter journey through the Snæfellsnes peninsula on the...
22/06/2026
🚧 Ath. Framkvæmdir við Saxhól. 🚧
Frá og með morgundeginum 23.6.2026 verður lokað við Saxhól vegna framkvæmda.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda, bendum á nærliggjandi áfangastaði. T.d. Rauðhól, Hólahólar Djúpalónssand, Malarrif og Svalþúfu.
Framkæmdir munu standa yfir í 7-10 daga.
Tímabundin lokun við og á Saxhól
← Fréttir Tímabundin lokun við og á Saxhól Birt 22.06.2026 · Ingunn Ýr Angantýsdóttir Frá og með morgundeginum 23.6.2026 verður lokað við Saxhól vegna framkvæmda.Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda, bendum á nærliggjandi áfangastaði. T....
15/06/2026
💚Sumarið í þjóðgarðinum er formlega hafið!
🥾Fyrsta fræðsluganga sumarsins var í dag , gengið var frá Malarrifi að Lóndröngum með landverði. Þessar göngur verða alla daga í sumar kl 13:00.
🪻Fyrsta sérgangan er á fimmtudaginn - Blómaganga í Búðarhrauni.
👉sjá link í fyrstu athugasemd.
14/06/2026
🌱Fræðsludagskrá sumarsins hefst á morgun 15. júní.
🪻Alla daga í sumar verða göngur frá Malarrifi með landverði að lóndröngum kl 13:00.
💚Fræðslugöngur, barnastundir og sérstakir viðburðir í boði fyrir öll.
👇Dagskrá í fyrstu athugasemd.
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
12/06/2026
Fræðsludagskrá sumarsins 2026 🪻
🌱Fjölbreytt fræðsludagskrá hefst núna á mánudaginn 15. júní í Snæfellsjökulsþjóðgarði
💚Fræðslugöngur, barnastundir og sérstakir viðburðir í boði fyrir öll.
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
💚🪻🌱
07/06/2026
⚓Í dag, á sjómannadaginn sendum við öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur og þakkir fyrir þeirra mikilvæga starf.
🌊Við Malarrif í þjóðgarðinum stendur Malarrifsviti, sem um áratuga skeið hefur verið mikilvægt leiðarljós fyrir sjófarendur. Áður fyrr gegndu vitar lykilhlutverki við að leiðbeina skipum, vara við hættum og auka öryggi á sjó. Í dag hafa GPS-tæki og önnur nútímatækni tekið við mörgum af þeim verkefnum, en vitarnir standa enn vörð sem mikilvægar öryggis- og menningarminjar.
Til hamingju með sjómannadaginn!
⚓🌊
30/05/2026
💚Í maí hafa verið góð skilyrði fyrir fjölbreytt viðhaldsverkefni.
🥾Landverðir þjóðgarðsins hafa nýtt tímann vel til að sinna mikilvægu viðhaldi á innviðum og lagfæra skemmdir.
⚒️Til að halda svæðinu í sem bestu ástandi er notast við fjölbreytt verkfæri og aðferðir við viðhald og endurheimt.
🌿Við minnum gesti á mikilvægi þess að ganga eftir merktum stígum og fylgja stikum. Með því verndum við viðkvæman gróður og komum í veg fyrir að nýir villustígar myndist.
Sjáumst í þjóðgarðinum okkar allra!
💚🥾🌿
29/05/2026
Vel heppnaður dagur á opnun ljósmyndasýningarinnar Melrakki eftir Phil Garcia í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi í dag, 29. maí.
Gestir nutu einnig áhugaverðs erindis Esterar Rutar spendýravistfræðings um íslenska refinn sem vakti mikinn áhuga.
Sýningin stendur til 23. maí og er að sjálfsögðu opin öllum. Bókin þeirra Melrakki fæst hjá okkur á báðum gestastofunum okkar fyrir áhugasama.
Takk kærlega fyrir komuna!
💚🦊🌱