22/06/2026
🧶💜 Prjónahittingur á bókasafninu í kvöld kl. 18 💜🧶
Það er alltaf notalegt að hittast yfir prjónunum á mánudagskvöldum, en í kvöld viljum við bjóða sérstaklega velkomin öll sem eru að prjóna Skjól – peysuna sem prjónuð er til styrktar Kvennaathvarfinu á Íslandi.
Það væri svo gaman að sjá hversu mörg Skjól eru í vinnslu í Rangárvallasýslu, skoða litasamsetningar og deila ráðum! 💜
Að auki er þetta frábær vettvangur til að fá aðstoð eða aðstoða, deila ráðum og brellum og njóta þess einfaldlega að eiga notalega stund saman yfir prjónum og kaffibolla. 💜🧶 ☕
Hvort sem þú ert nýbyrjuð á þínu Skjóli, komin langt á leið eða bara með allt annað á prjónunum, þá ertu hjartanlega velkomin. ✨
📚 Bókasafnið
🕕 Mánudagur kl. 18
Við hlökkum til að sjá ykkur og öll fallegu Skjólin sem eru að verða til. 🧶💜
18/06/2026
Sumarbókamarkaðurinn er klár!
Allar bækur á 200 kr. eða þú kemur með poka og fyllir hann fyrir 1.000 kr.
Sérstök hilla er fyrir sérstakar bækur sem kosta 1.000 kr. stykkið (Undir bárujárnsboga, Halldór Laxnes - Úrvalsbók og Vitar á Íslandi). Það á svo örugglega eitthvað eftir að bætast við svo það er góð hugmynd að kíkja á okkur öðru hvoru í sumar :)
Afgreiðslutími:
Mánud. 15:00-20:00
Þriðjud. 15:00-18:00
Miðvikud. 15:00-18:00
Fimmtud. 15:00-18:00
15/06/2026
Það var meeergjað gaman hjá okkur á fimmtudaginn þegar Gunnar Helgason heimsótti okkur. Hann las kafla úr bókunum "Siggi sítróna", "Birtingur og símabannið mikla" og svo las hann úr bókinni sem kemur út í október - rosalega spennandi. Leó og Júlía voru þau heppnu í happdrættinu og allir fengu áritun - sumir í bók, sumir á blað og sumir á hendina 🤭
Næstum því 50 gestir mættu á viðburðinn 😊
Nú hljóta allir krakkarnir að vera rosalega dugleg að lesa og koma svo á bókasafnið til að fá límmiða í vegabréfið sitt.📚📖
09/06/2026
Í tilefni af lestrarspretti Gúnda geithafurs ætlar Gunni Helga að heimækja Héraðsbókasafn Rangæinga og lesa upp úr einni af sínum eldri bókum og einn kafla úr bókinni sem hann er að skrifa núna (sem við verðum þá fyrst í heimi til að heyra).
Gunni vill gjarnan fá tillögur að bók til að lesa uppúr
Tveir heppnir gestir fá bókagjöf
Öll velkomin :)
Viðburðurinn er í boði sumarlestur.is og styrktur af bókasafnssjóði
08/06/2026
Gunni Helga kemur á bókasafnið okkar allra!
Hvaða kafla úr hvaða bók langar þig að heyra hann lesa?
05/06/2026
Takið frá fimmtudaginn 11. júní kl. 11:00
Í tilefni af lestrarspretti Gúnda geithafurs ætlar Gunni Helga að heimækja Héraðsbókasafn Rangæinga og lesa upp úr einni af sínum eldri bókum og einn kafla úr bókinni sem hann er að skrifa núna (sem við verðum þá fyrst í heimi til að heyra).
Viðburðurinn er í boði sumarlestur.is og styrktur af bókasafnssjóði.
Gunni vill gjarnan að þið setjið í athugasemdir hvaða kafla úr hvaða bók ykkur langar að heyra hann lesa :)