22/06/2026
Innritun nýnema í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2026–2027 er lokið. Alls fengu 5.152 nemendur úthlutað skólavist, sem er mesti fjöldi frá upphafi. 97% nemenda fengu pláss í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.
Allir nýnemar komnir með skólavist fyrir næsta skólaár - innritun í framhaldsskóla lokið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Allir nýnemar sem uppfylltu inntökuskilyrði fengu skólavist fyrir næsta skólaár. Um 97% fengu pláss í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.
19/06/2026
🤖 Næsta skref AI – gervigreindur vegvísir
Næsta skref AI er ný gervigreindarlausn sem sækir upplýsingar af Næsta skrefi og úr Stuðningsbanka SÍF til að aðstoða fólk við að finna upplýsingar um nám, störf og starfsþróun.
Lausnin er lokaverkefni fjögurra nemenda í hugbúnaðarverkfræði og tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík sem unnið var á vormisseri 2026.
Næsta skref AI – gervigreindur vegvísir | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Ný gervigreindarlausn, Næsta skref AI, er nú í þróun fyrir vefinn Næsta skref. Lausnin sækir upplýsingar af Næsta skrefi og úr Stuðningsbanka SÍF og er ætlað að auðvelda fólki að finna upplýsingar um nám, störf og starfsþróun. Næsta skref AI var þróað sem lokaverkefni fj....
08/06/2026
Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: Snemmtæk íhlutun í leikskólum var haldin í Borgarbyggð síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins.
Málörvun í daglegu leikskólastarfi efld í Borgarbyggð | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Í leikskólastarfi gefast mörg tækifæri á hverjum degi til að styðja við mál og læsi barna. Í Borgarbyggð hefur starfsfólk allra leikskóla sveitarfélagsins unnið markvisst að því í vetur að nýta þau tækifæri enn betur og móta sameiginlega sýn á málörvun í starfinu. Upp...
03/06/2026
„Við viljum nota þetta tækifæri til að þakka kennurum, skólastjórnendum og sveitarfélögum um allt land fyrir samstarfið. Verkefnið hefur kallað á mikla vinnu, þolinmæði og lausnamiðað samtal. Samvinnan á milli allra þessara aðila hefur verið einstök.
Skólar fengu niðurstöðurnar sendar í síðustu viku og nú geta foreldrar og forsjáraðilar nálgast þær á Mínum síðum á Ísland.is.“
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs
Nýtt samræmt námsmat orðið að veruleika | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Í dag fá foreldrar og forsjáraðilar grunnskólabarna landsins í fyrsta sinn aðgang að niðurstöðum barna sinna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í gegnum Ísland.is. Það er ánægjulegur og mikilvægur áfangi í þróun nýs samræmds námsmats fyrir grunnskóla. Um er að ræ...
01/06/2026
📚 RISAstórar smáSÖGUR 2026 eru komnar út!
Í bókinni má finna 17 skemmtilegar og fjölbreyttar sögur eftir börn á aldrinum 6–12 ára sem sendu inn verk í smásagnasamkeppni Sagna - samstarfs um barnamenningu.
Sögurnar sýna kraftmikið ímyndunarafl, sköpunargleði og frásagnargáfu barna um allt land. Við óskum öllum höfundunum innilega til hamingju!
Í fréttinni má einnig finna tengil á upptöku af Sögum - verðlaunahátíð barnanna 2026 þar sem verðlaun voru veitt fyrir framúrskarandi barnamenningu og verk barna sjálfra.
Lesið fréttina og skoðið rafbókina 👇
RISAstórar smáSÖGUR 2026 komnar út | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Rafbókin RISAstórar smáSÖGUR kemur nú út í níunda sinn. Í bókinni eru 17 áhugaverðar og skemmtilegar sögur eftir börn á aldrinum 6–12 ára. Sögurnar voru valdar úr fjölmörgum sögum sem bárust í smásagnasamkeppni á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, KrakkaRÚ...
01/06/2026
Nú er hægt að finna allt framhaldsskólanám á Íslandi á einum stað á Framhaldsskólanám.is. Þar má meðal annars skoða námsbrautir, bera saman möguleika og kynna sér fjölbreytt námsframboð framhaldsskóla um land allt 👇
Allt framhaldsskólanám á Íslandi á sama stað – framhaldsskolanam.is | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Nýr vefur mennta- og barnamálaráðuneytisins, framhaldsskolanam.is, hefur verið tekinn í notkun. Þar eru í fyrsta sinn birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavæn...
29/05/2026
Það var glatt á hjalla og mikill innblástur í salnum á uppskeruhátíð Heillaspora í liðinni viku 🌱
Heillaspor styðja sveitarfélög, skóla og skólaþjónustu við að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir börn í skóla- og frístundastarfi. Nálgunin byggir á samræmdum verkfærum, samtali og markvissri innleiðingu.
Sveitarfélög sem hafa unnið með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að innleiðingu Heillaspora í vetur deildu reynslu sinni, lærdómi og hugmyndum um áframhaldið. Það var sérstaklega ánægjulegt að heyra hversu vel nálgunin hefur nýst þeim í að styrkja verklag, efla samstarf og skapa sameiginlegan skilning á því hvernig best er að styðja við börn og fjölskyldur.
Á staðnum voru fulltrúar sveitarfélaga, Mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fleiri sem vinna að farsæld barna.
Takk fyrir dýrmætt samtal, góða samveru og mikilvæga vinnu í þágu barna 💜
28/05/2026
📚 Ný fjöltyngd lestrarbók fyrir yngsta stigið!
Þetta er í fyrsta sinn sem við gefum út fjöltyngda lestrarbók 💜
Lúkas lesmús eftir Brynhildi Stefánsdóttur segir frá músinni Lúkas sem bjargar lífi sínu með því að kunna að lesa. Bókin kemur út á íslensku, ensku og pólsku og styður við læsi, orðaforða og skemmtilegar samræður um söguna.
Í bókinni má meðal annars finna:
🐭 orðskýringar og verkefni
🐭 fjölbreytta möguleika til umræðu og ritunar
🐭 stuðning við samstarf heimila og skóla
Bókin getur nýst bæði tvítyngdum börnum og íslenskumælandi nemendum sem vilja kynnast fleiri tungumálum og sjá tungumál sem tækifæri til samskipta og skilnings.
Lúkas lesmús - fjöltyngd lestrarbók fyrir yngsta stig | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Út er komin bókin Lúkas lesmús eftir Brynhildi Stefánsdóttur. Þetta er í fyrsta skipti sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gefur út fjöltyngda lestrarbók fyrir yngsta stig grunnskóla.