05/06/2026
🔧 Endurnýjun dreifikerfis við Faxabraut í Keflavík
HS Veitur hefja framkvæmdir við endurnýjun dreifikerfis rafmagns, vatns og hitaveitu við Faxabraut þann 11. júní. Markmið verkefnisins er að auka afhendingaröryggi og styrkja innviði svæðisins til framtíðar. ⚡💧♨️
Framkvæmdir standa fram í desember 2026 og verða unnar í þremur til fjórum áföngum eftir tíðarfari.
🚧 Á framkvæmdatíma má búast við tímabundnum óþægindum fyrir íbúa og vegfarendur. Aðgengi að innkeyrslum og gangstéttum við Faxabraut, Krossholt og Þverholt verður skert á köflum, en lögð verður áhersla á að halda aðgengi að fasteignum eins og kostur er.
Við þökkum íbúum og öðrum vegfarendum fyrir þolinmæði og skilning meðan á framkvæmdum stendur.
📍 Nánari upplýsingar:
https://www.hsveitur.is/framkvaemdir/framkvaemdafrettir/keflavik-endurnyjun-a-dreifikerfi-vid-faxabraut-sumarid-2026/
Reykjanesbær
23/04/2026
UPPFÆRT 18:05 Viðgerð lokið allir viðskiptavinir komnir með rafmagn.
UPPFÆRT 08:50 bilun fundin viðgerð er að hefjast.
UPPFÆRT 08:40 Allir almennir notendur eru komnir með rafmagn að nýju kaldavatns dælustöð HS Veitna er keyrð á varafli og eins er rafmagnslaust í nágrenni olíubyrgðarstöðvar við Háaleytishlað.
Unnið er að því að finna bilun á þessu svæði.
Rafmagnslaust er í hluta af Ásbrú viðskiptavinir eiga að hafa fengið sms skilaboð um rafmagnsleysi.
unnið er við að staðsetja bilun og í framhaldi verður farið í viðgerð.
Þessi færsla verður uppfærð.
06/04/2026
Uppfært kl. 21:09 👉 rafmagn komið aftur á alla notendur á Keflavíkurflugvelli.
Rafmagnslaust er á Keflavíkurflugvelli. Unnið er að bilanagreiningu. Flugstöðvarbyggingin sjálf er á varaafli og rekstur hennar óraskaður að svo stöddu.
Þessi póstur verður uppfærður.
06/04/2026
Til upplýsinga fyrir viðskiptavini okkar í Vestmannaeyjum.
Uppfært kl 21.18 👉 heitt vatn er aftur farið að berast til viðskiptavina í Vestmannaeyjum 🩵
Vegna þessa þá sló varmaverið í Vestmannaeyjum út og varð heitavatnslaust í kjölfarið. Unnið er að því að bregðast við því til að koma heita vatninu á aftur.
01/04/2026
Rafmagsnlaust í hluta af Sandgerði:
2.apr. 17:56 UPPFÆRT Og það varð 💡 viðgerð lokið og allir viðskiptavinir komnir með rafmagn.
2.apr. 12:05 UPPFÆRT Varanleg viðgerð á háspennustreng er að hefjast og er því rafmagnslaust á því svæði sem fram kemur á meðfylgjandi mynd, gert er ráð fyrir að rafmagn komist á að nýju fyrir kl 18:00 í kvöld.
01:30 UPPFÆRT Rafmagn komið á alla viðskiptavini, farið verður í varanlega viðgerð þegar veður lægir eða uppúr hádegi á morgun.
22:50 UPPFÆRT Bilun hefur verið staðsett og unnið er að því að koma rafmagni á að nýju
21:33 UPPFÆRT Bætt við mynd af því svæði sem er án rafmagns þessa stundina bilanaleit stendur yfir á þessu svæði.
20:54 UPPFÆRT Rafmagn komið á alla viðskiptavini nema þá sem tengdir eru við dreifistöðvar frá Hólkoti og að Stafnesi. Bilanagreining stendur yfir.
Þessi póstur verður uppfærður.
Suðurnesjabær