23/10/2025
Við styðjum Krabbameinsfélagið
Starfsfólk Félagsbústaða gerði sér dagamun og tók að sjálfsögðu þátt í Bleika deginum 22.10.2025
Allt starfsfólk mætti í einhverju bleiku og flestir komu með veitingar á bleika kaffihlaðborðið sem stjórn starfsmannafélagsins skipulagði.
Veitt voru verðlaun fyrir flottasta bleika klæðnaðinn og var fallegur múmínbolli í verðlaun sem var keyptur í Bleiku búðinni og er til styrktar málefninu.
21/08/2024
Félagsbústaðir bætir þjónustu við leigjendur
Nú geta allir leigjendur Félagsbústaða skráð sig á fljótlegan og einfaldan hátt inn á þjónustugáttina Mínar síður. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um leigusamninga, séð leigureikninga og sent inn viðhaldsbeiðnir.
Hvað er hægt að gera á Mínum síðum?
• Bætt við/breytt netfangi.
• Bætt við/breytt símanúmeri.
• Bætt við/breytt bankareikningsnúmeri.
• Sækja afrit af leigusamninginum þínum.
• Skoða útgefna reikninga og sundurliðun á þeim.
• Senda inn viðhaldsbeiðnir.
https://minarsidur.felagsbustadir.is/
Hægt er að hafa samband vakni spurningar varðandi Mínar síður í síma 520-1500 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]
19/08/2024
Heitavatnslaust 19-21 ágúst í Breiðholti og Norðlingaholti
Vegna tengingar á nýrri flutningsæð hitaveitu ætlar Veitur að loka fyrir heita vatnið í Breiðholti og Norðlingaholti í kvöld 19. ágúst frá klukkan 22:00 til hádegis miðvikudaginn 21. ágúst 2024.
Vegna þessa ætlum við hjá Félagsbústöðum að senda pípara til að skrúfa fyrir vatnið í kvöld milli klukkan 21:00 & 22:00 og aftur ætlar hann að skrúfa frá einum til tveimur klukkustundum eftir að Veitur hleypir vatnið aftur á. Með þessu þá erum við að koma í veg fyrir skemmdir.
Gott fyrir leigjendur að hafa í huga að skrúfa fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið er hleypt aftur á.
Nánari upplýsingar má finna hér à https://www.veitur.is/bilanir/suduraedarlokun_agust_2024
Kær kveðja
Starfsfólk Félagsbústaða
24/05/2024
Ánægja leigjenda Félagsbústaða með húsnæði og þjónustu eykst milli mælinga - Félagsbústaðir
Niðurstöður könnunar sem nýverið var gerð meðal leigjenda Félagsbústaða benda til aukinnar ánægju með þjónustu og aðra þætti sem spurt var um borið saman við
21/12/2023
Við sendum leigjendum Félagsbústaða, samstarfsaðilum og viðskiptavinum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum liðið. Megi komandi ár færa gleði og gæfu.
09/06/2023
Nú þurfa allir að fara að flokka meira og við tökum þátt í því. Vinnum öll saman að því að hafa umhverfi okkar snyrtilegt.
Breytingar á sorphirðu og flokkun - Félagsbústaðir
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að miklar breytingar eru að verða á sorphirðu og flokkun sorps á höfuðborgarsvæðinu. Helsta breytingin er sú að
31/05/2023
Framkvæmdir eru að hefjast á Háteigsveg 59.
Stefnt að 30% minna kolefnisspori við byggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk - Félagsbústaðir
Félagsbústaðir hefja í dag framkvæmdir við byggingu átta íbúða húss fyrir fatlað fólk við Háteigsveg 59. Húsið er hannað með þarfir íbúanna í huga og er gert
05/04/2023
Félagsbústaðir senda leigjendum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um gleðilega Páska og vona að öll eigi ánægjulegar stundir með fjölskyldu og vinum yfir páskana. Skrifstofa Félagsbústaða opnar aftur þriðjudaginn 11. apríl kl. 9.