23/06/2026
Ályktun gegn síónisma, þjóðarmorði og meðábyrgð Íslands
Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands helgina 6.-7. júní 2026 samþykkti einróma eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands fordæmir síónisma sem nýlendustefnu, kynþáttahyggju og hugmyndafræðilegan grundvöll hernáms, aðskilnaðarstefnu og þjóðarmorðs gegn palestínsku þjóðinni.
Aðalfundurinn fordæmir þjóðarmorð Ísraels á Gaza, hernám Palestínu og árásir Ísraels og Bandaríkjanna í Vestur-Asíu. Framferði Ísraels ber einkenni fasískrar stefnu: afmennskun, landrán, fjöldamorð, hungur sem vopn og algert virðingarleysi fyrir alþjóðalögum. Lærdómurinn af nasismanum verður að gilda fyrir alla: Aldrei aftur.
Sósíalistaflokkur Íslands krefst tafarlauss vopnahlés, endaloka hernámsins, viðskiptabanns á Ísrael, vopnabanns og alþjóðlegra refsiaðgerða gegn Ísraelsríki.
Íslensk stjórnvöld, sveitarfélög og opinberar stofnanir skulu slíta öllu samstarfi við Ísrael og fyrirtæki sem styðja við eða hagnast á hernámi og aðskilnaðarstefnu, þar á meðal Rapyd. Kjörnir fulltrúar Sósíalistaflokksins skulu beita sér fyrir því á Alþingi og í sveitarstjórnum af fullum þunga. Einnig skulu kjörnir fulltrúar læra að bera kennsl á hagsmunasamtök síónista í Evrópu og víðar.
Aðalfundurinn hafnar aðild Íslands að IHRA, opinberum síónistasamtökum, þar sem skilgreiningar eru notaðar til að rugla saman gyðingahatri og andstöðu við síónisma. Upptaka tillagna þessara síónísku samtaka hefur leitt beint til handtöku mörg þúsund manns í Evrópu vegna mótmæla þeirra gegn þjóðarmorði.
Frjáls Palestína.
Viðskiptabann á Ísrael.
Burt með síonisma.

11/06/2026
19/05/2026
19/05/2026