Samfylkingin

Samfylkingin

Share

Samfylkingin – Jafnaðarflokkur Íslands 🌹

Samfylkingin er jafnaðarflokkur Íslands og berst fyrir frelsi og lýðræði, kvenfrelsi, jafnrétti og samfélagslegri ábyrgð. Kynntu þér meira um Samfylkinguna hér: https://xs.is/um

Með því að líka við þessa Facebook síðu Samfylkingarinnar ertu ekki að gefa upp stjórnmálaskoðun eða gerast meðlimur í Samfylkingunni. Hægt er að skrá sig í flokkinn hér: https://xs.is/takathatt

Samfylkingin kann að bei

20/06/2026

Sterkara Ísland 🇮🇸

19/06/2026

Verkin tala 🌹
Í vetur höfum við klárað fjölda mála sem styrkja Ísland allt 🇮🇸

• Ný samgönguáætlun: Stóraukið viðhald vega, stofnun innviðafélags og byrjað aftur að bora jarðgöng 2027
• Lægri raforkureikningur í dreifbýli, árangur í orkumálum og framkvæmdir um land allt
• Strangari löggjöf um vindorku og tvær nýjar rammaáætlanir
• Hallalaus fjárlög 2027 í fyrsta sinn í tæpan áratug með nýrri fjármálaáætlun
• 15% fækkun ríkisstofnana á kjörtímabilinu
• Fyrsta atvinnustefna Íslands til að auka framleiðni eftir 0% hagvöxt á mann frá 2018
• Stórfelld uppstokkun á eftirlitsumhverfi fyrirtækja
• Afnám auglýsingaskyldu í 104 flokkum atvinnustarfsemi og afnám jafnlaunavottunar
• Fjögur lagafrumvörp samþykkt til að ná styrkari stjórn á útlendingamálum
• Hertar reglur um Airbnb og minni skattahvatar til að safna íbúðum
• Samningar um íbúðauppbyggingu á ríkislóðum og 10 ára skattfrjáls séreignarsparnaður inn á höfuðstól
• Hlutdeildarlánakerfi sem virkar, hækkun á stofnframlögum til almennra íbúða og betri húsaleigulög með takmörkunum á hækkun leiguverðs
• Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
• Lífeyrir fylgir launum, aldursviðbót öryrkja helst ævilangt og hærra frítekjumark eldra fólks
• Betra fæðingarorlof, hærra þak og ný lög um að hækkanir gangi til allra foreldra í orlofi
• Ný þjóðarhöll í framkvæmd, viðbygging við Þjóðleikhúsið fjármögnuð og framtíðarheimili Listaháskólans fundið í Stakkahlíð
• Stækkun Sjúkrahússins á Akureyri hafin, stórfjölgun hjúkrunarrýma og létt á bráðamóttöku
• Langtímasamningar við Ljósið og SÁÁ og styttri bið eftir meðferð og sálfræðiþjónustu
• Styrking háskólastigs og STEM-greina og byggt við fjóra verknámsskóla á kjörtímabilinu
• Lög um símafrí í grunnskólum og skýrara námsmat
• Hærri framfærsla og hærra frítekjumark hjá Menntasjóði námsmanna
• Lækkun á dælunni og verðið vaktað
• Þjóðinni treyst til að kjósa um framhald aðildarviðræðna við ESB

Og svo mætti áfram telja.

Takk fyrir stuðninginn og áfram gakk! 🏃🏃‍♀

18/06/2026

Örugg skref í heilbrigðismálum 🌹
• Stækkun Sjúkrahússins á Akureyri hafin
• Fjölgun hjúkrunarrýma og létt á bráðamóttöku
• Langtímasamningar við Ljósið og SÁÁ
• Styttri bið eftir meðferð og sálfræðiþjónustu
• Aldrei fleiri nemendur í heimilislækningum

👉 Svo þú fáir örugga þjónustu þegar þörf er á

18/06/2026

Lögum húsnæðismarkaðinn 🏠
• Íbúðir lækka að raunvirði milli ára
• Hæsta hlutfall fyrstu kaupenda í 5 ár
• Verðtryggðum lánum fækkar
• Nýframkvæmdum fjölgar enn

Með húsnæðispökkum sem hemja verð, fjölga íbúðum, bæta húsnæðisstuðning og draga úr hvata til að safna íbúðum

👉 Til að þú getir átt öruggt þak yfir höfuðið

17/06/2026

Gleðilegan 17. júní! 🇮🇸

Í dag fögnum við lýðveldinu okkar og öllu því góða sem býr í íslensku samfélagi.

Njótið dagsins með fjölskyldu og vinum, hvar sem þið eruð á landinu. 🌹

16/06/2026

Árangur í orkumálum ✅
• Lægri raforkureikningur í dreifbýli
• Framkvæmdir um land allt
• Tvær nýjar rammaáætlanir
• Stórfelld einföldun regluverks
• Strangari löggjöf um vindorku

👉 Til að skapa sátt um orkunýtingu og vernd á íslenskri náttúru

15/06/2026

Áfram Ísland 🇮🇸
• Loksins framkvæmdir við nýja þjóðarhöll
• Tilboð íslenskra aðalverktaka samþykkt
• Með fjármögnun ríkis og Reykjavíkurborgar

Verkin tala 🤝 takk!

15/06/2026

Tiltekt í ríkisrekstri ✅
• Loksins hallalaus fjárlög
• 170 milljarða hagræðing
• 15% fækkun ríkisstofnana

Um leið og við lögum vegi, eflum löggæslu, byggjum hjúkrunarheimili og verknámsskóla, látum lífeyri fylgja launum, styttum biðlista og styrkjum innviði og velferð um land allt með nýrri fjármálaáætlun 2027-2031

👉 Þannig styrkjum við Ísland

12/06/2026

Nú ræsum við vélarnar 🇮🇸
• Loksins ný samgönguáætlun eftir áralanga bið
• Viðhald á vegum úr 13 í 20 milljarða á ári
• Flýtum framkvæmdum með innviðafélagi
• Byrjum aftur að bora jarðgöng

👉 Til að styrkja Ísland allt

10/06/2026

„Við skuldum komandi kynslóðum meira en að standa vörð um stöðuna á Íslandi eins og hún er í dag. Okkur ber skylda til að skilja eftir betra Ísland en það sem var, þegar við tókum við.“

Ása Berglind Hjálmarsdóttir í almennum stjórnmálaumræðum á Alþingi í kvöld.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hallveigarstígur 1
Reykjavík
101REYKJAVÍK