Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board

Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board

Share

Ferðamálastofa fer með stjórnsýslu ferðamála í samræmi við lög sem um hana gilda.

Yfirstjórn málaflokksins er í höndum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem skipar ferðamálastjóra til fimm ára í senn. Ferðamálastjóri veitir Ferðamálastofu forstöðu og ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.

18/06/2026

Atvikavaktin á 30 mínútum! Til að styðja við öflugra öryggisstarf hefur Ferðamálastofa tekið í notkun Atvikavaktina – miðlægt atvikaskráningarkerfi fyrir ferðaþjónustuna. Kerfið er fyrirtækjum að kostnaðarlausu og gerir þeim kleift að skrá slys, óhöpp og næratvik á einfaldan og samræmdan hátt.

Til að auðvelda fyrirtækjum að hefja notkun bjóðum við nú upp á þrjú stutt örnámskeið (30 mínútur hvert) þar sem farið er yfir grunnatriði kerfisins, vhernig hægt er að nýta mælaborð og gögn til umbóta og forvarna og hvernig Atvikavaktin getur stutt við öryggisáætlanir og daglegt öryggisstarf fyrirtækja. Námskeiðin eru sérstaklega ætluð stjórnendum og millistjórnendum.

https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/atvikavaktin-a-30-minutum-ornamskeid-fyrir-ferdathjonustuadila

Photos from Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board's post 16/06/2026

Í dag var Atvikavaktinni ýtti úr vör, nýju skráningarformi sem heldur utan um slys, óhöpp og atvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt. Markmiðið með Atvikavaktinni er að efla öryggi, gæði og fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.

Um mikilvægan áfanga er að ræða þegar kemur að auknu öryggi ferðamanna en Atvikavaktin er hönnuð með þarfir ferðaþjónustufyrirtækja í huga til að spara tíma, bæta yfirsýn og styðja við markvisst öryggisstarf.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundi sem Ferðamálastofa stóð fyrir af þessu tilefni.

Ferðamálastofa - Streymi - 16.6.26 16/06/2026

Hér er hlekkur á beint streymi frá fundi Ferðamálastofu kl. 15 í dag um hvernig efla megi öryggi og styðja við forvarnir í ferðaþjónustu. Þar mun Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra m.a. kynna til sögunnar Atvikavaktina, nýtt miðlægt skráningarkerfi fyrir atvik og slys í ferðaþjónustu.

Ferðamálastofa - Streymi - 16.6.26

12/06/2026
27/05/2026

Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri var kjörinn varaforseti Ferðamálaráðs Evrópu, ETC, á aðalfundi sambandsins sem nú fer fram í Svartfjallalandi. Þrír voru í kjöri og fékk Arnar flest atvæði.

Á fundinum koma saman leiðtogar ferðamálaráða 32ja Evrópulanda til að ræða framtíð evrópskrar ferðaþjónustu. Miguel Sanz, ferðamálastjóri Spánar, var endurkjörinn forseti ETC.

https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/arnar-mar-kjorinn-varaforseti-ferdamalarads-evropu

26/05/2026

Ferðamálastofa hefur gefið út hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti vegna almyrkva á sólu sem verður sýnilegur frá Íslandi þann 12. ágúst 2026.

Leiðbeiningunum er ætlað að styðja við undirbúning og framkvæmd dagsins með áherslu á öryggi gesta, samræmda upplýsingagjöf, ábyrga nýtingu innviða og góða umgengni um náttúruna.

Sjá nánar í fyrstu athugasemd.

07/05/2026

Ferðaþjónusta í Evrópu stendur sterk í byrjun árs 2026 þrátt fyrir óvissu í heimsmálunum, samkvæmt nýrri skýrslu ETC.

Vöxtur varð víða milli ára norðantil í álfunni sem þó á ekki við um Ísland.

Átökin í Miðausturlöndum eru farin að hafa áhrif á ferðalög á heimsvísu en líklegt á áhrfin í Evrópu verði minni en víða annarsstaðar.

Nánar í fyrstu athugasemd.

30/04/2026

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðsvegar um landið.

Sérstök áhersla var lögð á öryggi á ferðamannastöðum við úthlutun að þessu sinni og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Geirsgata 9
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00