26/06/2026
European Competition Network (ECN) birti í vikunni sameiginlega yfirlýsingu um heimildir samkeppnisyfirvalda í Evrópu til að kalla inn til skoðunar samruna sem falla utan hefðbundinna tilkynningarmarka.
„Það er mikilvægt að samkeppnisyfirvöld hafi viðeigandi úrræði til að bregðast við þegar ástæða er til. Á Íslandi hefur slík heimild verið fyrir hendi um árabil og hefur reynst mikilvægt tæki til að tryggja virka samkeppni og vernda hagsmuni neytenda,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇
23/06/2026
Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir verði á afgreiðslu og yfirferð nýrra samrunatilkynninga hjá Samkeppniseftirlitinu í sumar.
Samkeppniseftirlitið telur rétt að gera fyrirtækjum og ráðgjöfum þeirra grein fyrir þessu svo hægt sé að taka tillit til framangreinds og gera viðeigandi ráðstafanir.
Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇 See less
15/06/2026
Landsréttur hefur snúið við frávísunarúrskurði héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins gegn Samskipum til efnismeðferðar.
Málið varðar stjórnvaldssekt vegna ólögmæts samráðs Samskipa og Eimskips. Landsréttur taldi ekki efni til að vísa málinu frá og verður það því tekið til efnislegrar meðferðar fyrir héraðsdómi.
Sjá tengil á frétt í fyrstu athugasemd 👇
10/06/2026
Íslendingar greiða um 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og aðeins í Sviss er matvara dýrari. Þá hafa verðhækkanir á matvöru verið meiri á Íslandi en í nágrannalöndum frá árinu 2020.
Þetta eru meðal niðurstaðna í nýju riti Samkeppniseftirlitsins um dagvöruverð á Íslandi og samanburð við önnur Evrópulönd. Í ritinu er fjallað um þróun verðlags, samanburð við nágrannalönd og möguleg áhrif samkeppni á verð til neytenda.
Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇
05/06/2026
Lyfja hf. og eigandi XY-lyfja ehf. sem á og rekur Borgar Apótek hafa tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að fallið hafi verið frá fyrirhuguðum viðskiptum um kaup Lyfju á Borgar Apóteki.
Samrunatilkynningin hefur því verið afturkölluð og lýkur þar með meðferð málsins hjá eftirlitinu.
Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇
28/05/2026
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að niðurstöður úttektar norska samkeppniseftirlitsins á bankamarkaði geti haft mikilvægt gildi við mat á samkeppnisaðstæðum hér á landi og mun eftirlitið fylgjast grannt með framvindu rannsóknarinnar í Noregi.
Páll Gunnar Pálsson bendir einnig á að þrátt fyrir að rekstrarkostnaður íslenskra banka hafi lækkað verulega á síðustu árum hafi vaxtamunur bankanna ekki minnkað samhliða.
Hann segir jafnframt að Samkeppniseftirlitið hafi heimildir til sambærilegra markaðsrannsókna hér á landi, en skortur á fjárheimildum hafi takmarkað nýtingu þeirra.
Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇
27/05/2026
Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði. Markmiðið er að kanna hvort aðstæður á markaðnum kunni að draga úr virkri samkeppni milli banka, meðal annars með áhrifum á vexti, gjöld og kjör fyrir heimili.
Sjá frétt á vef SKE👇
https://www.samkeppni.is/utgafa/frettir/norska-samkeppniseftirlitid-tekur-bankamarkadinn-til-skodunar/
26/05/2026
Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir umsögnum um fyrirhugaðan samruna TVG-Zimsen, Eimskips og Cargo Express.
Við rannsókn samrunamála er mikilvægt að fá fram sjónarmið þeirra sem þekkja markaðinn best — viðskiptavina, keppinauta og annarra hagaðila. Umsagnir geta skipt máli við mat á því hvort samruninn hafi áhrif á samkeppni og þjónustu á markaði.
Nánari upplýsingar um málið og hvernig hægt er að senda inn umsögn má finna í frétt á vef SKE. Sjá hlekk í fyrstu athugasemd 👇
26/05/2026
Þegar fyrirtæki sameinast eða eitt fyrirtæki nær yfirráðum yfir öðru þarf að meta áhrifin á samkeppni.
Samrunar geta haft áhrif á verð, þjónustu og val neytenda. Þess vegna þarf að tilkynna ákveðna samruna til Samkeppniseftirlitsins sem getur sett skilyrði eða jafnvel ógilt samruna.
Sjá nánar um samrunamál á vef Samkeppniseftirlitsins. Hlekkur í fyrstu athugasemd 👇
22/05/2026
Í tilefni af fjölmiðlaumfjöllun um hópuppsagnir hjá Berjaya Hotels Íslandi vill Samkeppniseftirlitið árétta að ekkert í samrunaákvæðum samkeppnislaga kemur í veg fyrir að nýir rekstraraðilar taki yfir ráðningarsambönd starfsfólks, endurráði starfsfólk eða eigi í samskiptum við það.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd 👇