Sólarupprás að morgni 17. júní 2026 séð með “augum” EUMETSAT gervitungla. EUMETSAT fagnar 40 ára afmæli í dag sem er samstarfsvettvangur 30 aðildarríkja, þar á meðal Íslands, en afurðir samstarfsins er mikilvægur þáttur í daglegri vöktun og veðurspárþjónustu Veðurstofunnar. Upplýsingar um veður og loftslag eru orðnar hluti af mikilvægustu innviðum nútímasamfélaga og í dag eru yfir 95% þeirra athugana sem nýttar eru í tölvulíkön til veðurspágerðar upprunnar frá gervihnöttum. 👉Nánar um EUMETSAT samstarfið á vefnum okkar: https://www.vedur.is/um-vi/frettir/eumetsat-fagnar-40-ara-afmaeli-i-dag
Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands mælir, rannsakar og miðlar upplýsingum. Höfuðstöðvar Veðurstofunnar eru að Bústaðavegi 7 í Reykjavík. Sími: 522 6000. Tel +354 522 6000.
Hún hefur eftirlit með ástandi og sendir út viðvaranir vegna veðurs, jarðhræringa, ofanflóða og vatnsflóða. Vefur: www.vedur.is Tölvupóstur: [email protected]. The IMO Headquarters lie on Bústadavegur 7, Reykjavik. Website: en.vedur.is. Email: [email protected].
17/06/2026
Gleðilegan þjóðhátíðardag! 🇮🇸 Það er fátt sem Íslendingar ræða jafn örugglega á þjóðhátíðardaginn og veðrið. Frá stofnun lýðveldisins hefur dagurinn boðið upp á nær allt litróf íslensks sumarveðurs: sólskinsskap, kalsa, úrhelli, snjó niður í byggð, blindhríð og jafnvel hamfarir. Tölfræðin bendir líka til þess að tilfinningin um gráan 17. júní sé ekki úr lausu lofti gripin. Í tilefni þjóðhátíðardagsins hefur Veðurstofan litið yfir veðrið á 17. júní frá árinu 1944. https://www.vedur.is/um-vi/frettir/17-juni-solskinsskap-blindhrid-dumbungur-og-storflod
01/06/2026
Jarðskjálfti vestur af Húsmúla 1. júní 2026
Jarðskjálfti af stærð 4,5 varð kl. 13:45 í dag vestur af Húsmúla í Henglinum. Veðurstofan hefur fengið fjölda tilkynninga um að skjálftinn hafi fundist greinilega víða á Suðvesturlandi m.a. á Akranesi og undir Eyjafjöllum.
Myndirnar þrjár sýnir hristikort með áhrifum jarðskjálftans. Stjarnan sýnir hvar skjálftinn átti sér upptök. Litirnir gefa til kynna styrk hristingsins þar sem heitari litir tákna sterkari hristing.
Fólk nálægt upptökunum gæti hafa fundið sterkan kipp, séð hluti hristast eða færast til og heyrt brak eða dynki í húsum. Fjær upptökunum fannst skjálftinn vægar þar sem styrkur hristingsins dvínar afar hratt eftir því sem fjær upptökunum dregur.
Jarðskjálftahrina hófst á svæðinu upp úr kl. 7 í gærmorgun, 31. mai, og hafa um 700 jarðskjálftar mælst síðan hrinan hófst. Búast má við eftirskjálftavirkni á svæðinu næstu daga.
Kortið sýnir staðsetningu og stærð jarðskjálfta vestur af Húsmúla í Henglinum frá kl. 7 í gærmorgun. Dökkar súlur sýna stærð yfirfarna jarðskjálfta, en ljósa súlur óyfirfarna.
Brotlausnir stærstu jarðskjálftanna og dreifing eftirskjálfta benda til þess að um sniðgengisskjálfta sé að ræða á norður-suður misgengi á brotabelti Suðurlands og Reykjaness.
Veðurstofan minnir á fólk að huga að viðbrögðum vegna jarðskjálfta, sjá nánar á heimasíðu Almannavarna: https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/vidbrogd-vid-jardskjalfta/
05/05/2026
🛰️ Við minnum á opinn EUMETSAT-viðburð á Veðurstofu Íslands á morgun, miðvikudaginn 6. maí, kl. 14:00–16:00.
EUMETSAT er evrópsk stofnun sem rekur veðurgervihnetti og miðlar gervihnattagögnum til veðurþjónusta, vísindasamfélagsins og annarra notenda.
Viðburðurinn fer fram í Matsal Veðurstofunnar, Bústaðavegi 7, og er öllum opinn. Fjallað verður um gervihnattagögn í þágu veðurs, loftslags og náttúruvár.
Þau sem ekki komast á staðinn geta fylgst með fundinum í gegnum Teams hér:
https://tinyurl.com/eumetsat-vedur
Hægt er að opna hlekkinn í vafra ef Teams-appið er ekki uppsett, skrá nafn ykkar á fundinn og koma inn sem gestur.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Fyrirlesarar verða frá EUMETSAT, Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnun:
Hayley Evers-King, Vesa Nietosvaara, Eiríkur Örn Jóhannesson, Ingibjörg Jónsdóttir og Joaquin Munoz Cobo Belart.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
04/05/2026
Könnun um áhrif eldfjallagass á farþega og áhafnir í flugi
Veðurstofa Íslands óskar eftir svörum frá fólki sem flaug til, frá eða innan Íslands á meðan eldgos stóðu yfir á Reykjanesskaga og telur að flugið þeirra gæti hafa farið í gegnum eldfjallagös.
Könnunin er ætluð bæði farþegum og starfsfólki flugfélaga.
Niðurstöðurnar verða notaðar til að skoða hvaða áhrif brennisteinsdíoxíð (SO₂) getur haft á fólk um borð í flugvélum.
Könnunina má finna hér:
https://tinyurl.com/Vedustofa-Islands
Könnunin er hluti af alþjóðlegu samstarfi Veðurstofu Íslands og ICAO, Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.
Survey on the effects of volcanic gas on passengers and aircrew
The Icelandic Meteorological Office invites responses from people who flew to, from or within Iceland while volcanic eruptions were ongoing on the Reykjanes Peninsula and believe their flight may have passed through volcanic gases.
The survey is intended for both passengers and airline staff.
The results will be used to assess how volcanic sulfur dioxide (SO₂) may affect people on board aircraft.
The survey can be found here:
https://tinyurl.com/Icelandic-Met-Office
The survey is part of an international collaboration between the Icelandic Meteorological Office and ICAO, the International Civil Aviation Organization.
29/04/2026
🛰️ Gervihnattagögn í þágu veðurs, loftslags og náttúruvár
Miðvikudaginn 6. maí kl. 14:00–16:00 verður opinn EUMETSAT-viðburður á Veðurstofu Íslands um nýjustu þróun í gervihnattagögnum og notkun þeirra á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
EUMETSAT gegnir lykilhlutverki í evrópsku samstarfi um veðurgervitungl og miðlun gervihnattagagna. Á viðburðinum verður fjallað um hvernig slík gögn nýtast við vöktun veðurs, loftslags, jökla og eldvirkni.
Fyrirlesarar:
Hayley Evers-King, EUMETSAT
Vesa Nietosvaara, EUMETSAT
Eiríkur Örn Jóhannesson, Veðurstofa Íslands
Ingibjörg Jónsdóttir, Háskóli Íslands
Joaquin Munoz Cobo Belart, Náttúrufræðistofnun
📍 Matsalur Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 7–9
🗓️ Miðvikudagur 6. maí
🕑 14:00–16:00
Viðburðurinn er öllum opinn og fer fram á ensku.
Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á eftirfarandi slóð:
https://teams.microsoft.com/meet/39347403641875?p=GuthiEhJLsWgXnyDJX
28/04/2026
Hvað er AMOC og hverju skiptir það fyrir Ísland?
Í Kastljósi í gær var rætt við Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, og Hrönn Egilsdóttur, sviðsstjóra umhverfissviðs hjá Hafrannsóknastofnun, um nýlegar rannsóknir, óvissu og möguleg áhrif breytinga á AMOC á haf- og loftslag við Ísland.
Á vef Loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands er að finna ítarlega skýringargrein um AMOC. Þar er meðal annars farið yfir muninn á AMOC og Golfstraumnum, helstu spurningar um hringrásina, mælingar, líkön, áhættu, heimildir og möguleg áhrif á Ísland.
Vísindalegt mat bendir til þess að AMOC veikist á þessari öld en óvissa er um umfang, tímasetningu og svæðisbundin áhrif. Breytingar á AMOC geta haft áhrif á sjávarhita, varmaflutning, veðurmynstur og breytileika í veðurfari. Þær geta einnig haft þýðingu fyrir vistkerfi sjávar og samfélög við Norður-Atlantshaf.
Loftslagsþjónustan brúar bilið á milli vísinda og samfélags með miðlun upplýsinga um áhrif loftslagsbreytinga og aðlögun að breyttum heimi.
Eða eins og kom fram í þættinum: Heimurinn heldur áfram, en spurningin er hvernig við stígum næstu skref.
Viðtalið í Kastljósi:
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/kastljos/38169/bc088h/veltihringras-atlantshafsins
Grein Loftslagsþjónustu Veðurstofunnar:
https://gottvedur.is/loftslagsbreytingar/frettir/veltihringras-atlantshafsins-hvad-er-amoc-og-hvada-thydingu-getur-thad-haft-fyrir-island/
24/04/2026
Hvernig má nota niðurstöður langtímahættumats?
Niðurstöður langtímahættumats vegna hraunavár eru ekki spá um hvar eða hvenær næst gjósi. Þær eru fyrst og fremst hugsaðar sem grunnur að undirbúningi, skipulagi og ákvarðanatöku til lengri tíma.
Þær geta nýst ólíkum hópum með ólíkum hætti:
Skipulag og landnotkun
Niðurstöðurnar geta hjálpað við að bera saman svæði, meta hvar berskjöldun fyrir hraunvá er meiri eða minni og styðja ákvarðanir um skipulag, landnotkun og framtíðaruppbyggingu.
Innviðir og þjónusta
Þær geta nýst við að greina hvaða innviðir geta verið útsettir, svo sem vegir, vatnslagnir, raflínur, virkjanir og önnur mannvirki sem samfélagið reiðir sig á. Þær geta einnig stutt undirbúning, forgangsröðun mótvægisaðgerða og viðbragðsáætlanir.
Almenningur
Upplýsingarnar geta hjálpað fólki að skilja betur hvaða svæði eru talin útsettari fyrir hraunvá en önnur og hvers vegna ákveðin svæði fá sérstaka athygli í skipulagi og viðbúnaði.
Mikilvægt er að hafa í huga að langtímahættumat kemur ekki í stað skammtímahættumats, vöktunar eða tilkynninga þegar virkni eykst. Þá skipta nýjustu mælingar og stöðuupplýsingar mestu máli.
Nánar: eldfjallava.is
23/04/2026
Gleðilegt sumar 🌿
Sumarið birtist í mörgum myndum, stundum í sól og blíðu, stundum í gráum himni og logni.
Hvernig birtist sumarið ykkur um land allt? 🌤️
Vetur og sumar frusu saman víða um land, einkum inn til landsins, aðfaranótt sumardagsins fyrsta, en slíkt á samkvæmt þjóðtrúnni að boða góða tíð.
Ekki ber þó öllum saman um hversu áreiðanleg sú vísbending er. Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur fjallað á skemmtilegan hátt um þessa gömlu þjóðtrú og bent á að ekki sé einfalt að lesa skýr teikn um sumarið út frá henni einni saman. Nánar má lesa um það í færslu hans hér neðst.
Við deilum tveimur myndum frá fyrsta morgni sumars. Önnur er úr vefmyndavél Veðurstofunnar á Goðabungu, en hina tók Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur, af þaki Veðurstofu Íslands um klukkan sjö í morgun.
Þegar frýs saman – sumar og vetur – þá hvað?
https://trj.blog.is/blog/trj/entry/1710745/
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Bústaðavegur 7-9
Reykjavík
105
