Lyfjastofnun

Lyfjastofnun

Share

Við gefum út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi og höfum eftirlit með hérlendum lyfjaiðnaði. nálgast fylgiseðla lyfja á íslensku.

Helsta hlutverk okkar er að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með hérlendum lyfjaiðnaði og tryggja faglega og hlutlausa upplýsingagjöf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Við rekum tvo vefi; www.lyfjastofnun.is og www.serlyfjaskra.is. Í mars 2017 bættist við vefurinn www.lyfjaskil.is sem inniheldur meðal annars gagnl

Photos from Lyfjastofnun's post 23/06/2026

Upprifjun um lausasölulyf

04/06/2026

Það er ekki oft sem klíníska teymið okkar fær tækifæri til að hittast á Íslandi en það gerðist í þessari viku þegar Carolilne, Pierre og Norbert komu.

Þá er mikið unnið og fundað og tíminn nýttur vel til að kynnast enn betur en hægt er á fjarfundum.

Gott að sjá ykkur!

26/05/2026

📢 Laust starf hjá Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða jákvæðan, drífandi og nákvæman einstakling á svið mats og skráningar lyfja.

✒️ Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% starfshlutfalli.

✒️ Helstu viðfangsefni og ábyrgð eru mat og afgreiðsla umsókna um ný markaðsleyfi, breytinga og viðhald á útgefnum markaðsleyfum, mat og þýðingar á lyfjatextum og afgreiðsla ýmissa skráningaverkefna.

✒️ Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026. Umsóknir óskast fylltar út á vef Intellecta og þarf þeim að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Áhugasamir geta kynnt sér frekari upplýsingar um starfið hér 👉 https://intellecta.is/storf/17794649658360099291dwu/

08/05/2026

Lyfjafræðinemarnir Laila og Vitalija voru í starfsnámi hjá Lyfjastofnun 20. til 30. apríl.

Þær fengu fjöldann allan af kynningum og fengu að reyna sig við ýmis verkefni stofnunarinnar, meðal annars að fara með eftirlitsmanni í úttekt. Það var sérstaklega gaman hversu áhugasamar þær voru um starfsemi stofnunarinnar og spurðu margra góðra spurninga.

Takk fyrir samveruna báðar tvær, vonandi sjáumst við aftur!

21/04/2026

Að gefnu tilefni vegna fjölmiðlaumfjöllunar

Ný reglugerð um notkun fylliefna til útlitsbreytinga gekk í gildi 1. desember 2025. Samkvæmt henni má einungis veita meðferð með fylliefnum á starfsstofu heilbrigðisstarfsmanns að undangenginni staðfestingu landlæknis á að reksturinn uppfylli faglegar kröfur. Börn yngri en 18 ára mega ekki þiggja meðferð af þessu tagi.

Frétt Lyfjastofnunar um reglugerðina:

https://www.lyfjastofnun.is/frettir/ny-reglugerd-um-notkun-fylliefna-til-utlitsbreytinga/

Nánar um fylliefni af vef Lyfjastofnunar í fyrstu athugasemd

Photos from Lyfjastofnun's post 20/04/2026

Í síðustu viku tókum við á móti stórum hópi lyfjafræðinema frá Norðurlöndunum.

Hópurinn var að taka þátt í PINSE, ráðstefnu sem hefur verið haldin árlega frá 1937, með örfáum undantekingum, en þetta er í annað skiptið sem hún er haldin hérlendis.

Þau fengu kynningu á fjölbreyttum störfum stofnunarinnar og við vonum að heimsóknin hafi verið jafn ánægjuleg fyrir þau og hún var fyrir okkur.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Vínlandsleið 14
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00