Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Árborg

Share

Í febrúar 1998 sameinuðust Eyrarbakkahreppur, Stokkseyrarhreppur, Sandvíkurhreppur og Selfosskaupstaður í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Árborg.

Miðbær Selfoss heldur áfram að vaxa 25/06/2026

„Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að skapa einstakt umhverfi þar sem list og menning fá að njóta sín samhliða verslun og þjónustu.“

Mælum með þessu skemmtilega viðtali við Davíð Lúther Sigurðarson, markaðsstjóra Miðbæjar Selfoss. ☀🏘🎨

Miðbær Selfoss heldur áfram að vaxa Fá uppbyggingarverkefni á Íslandi hafa vakið jafn mikla athygli á síðustu árum og Miðbær Selfoss sem hefur sannarlega breytt ásýnd bæjarins. Þar sem áður var fremur hefðbundinn miðbær er risinn lifandi samkomustaður með veitingahúsum, verslunum, menningu og mannlífi sem laðar...

24/06/2026

Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka hefst á föstudag 26. júní og dagskráin er klár! Láttu þig ekki vanta á þessa stórkostlegu hátíð við ströndina

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 23/06/2026

Sumaropnun á Listasafni Árnesinga | Summer time in LÁ Art Museum
Opið alla daga frá kl. 12 - 17 / Open every day 12 - 5 p.m.

Nú er safnið opið alla daga frá kl. 12 - 17. Í góðu veðri er tilvalið að setjast út fyrir með kaffibolla og tína jafnvel nokkur jarðarber úr garðinum. Í Krakkahorni er ratleikur og einn heppinn þátttakandi fær vinning í ágúst.

The museum is open everyday in the summertime. In this weather it is lovely to sit outside with a cup of coffee and maybe pick a strawberry or some herbs from the garden.
In the Kids Corner there is a scavenger hunt and at the end of summer one lucky participant will recieve a prize.

Kíktu á vefsíðu Listasafnsins og sjáðu upplýsingar um sýningar og fjölbreytta dagskrá í sumar: https://listasafnarnesinga.is/

On LÁ Art Museum website you can get info on their exhibitions and multible events: https://listasafnarnesinga.is

23/06/2026

Greiðsluseðlar sveitarfélagsins Árborgar nú aðgengilegir á Ísland.is

Sveitarfélagið Árborg hefur tekið upp nýtt fyrirkomulag þar sem allir greiðsluseðlar sveitarfélagsins eru nú aðgengilegir á Ísland.is. Með þessari breytingu færist útgáfa seðlanna frá „Rafræn skjöl“ í netbanka yfir á sameiginlega þjónustugátt hins opinbera, sem eykur aðgengi og einfaldar yfirsýn íbúa yfir sín mál.

Íbúar geta nú nálgast greiðsluseðla með því að skrá sig inn á Ísland.is og fara í „Mín mál“, þar sem seðlarnir birtast á einum stað ásamt öðrum gögnum frá hinu opinbera.

Sveitarfélagið hvetur íbúa til að kynna sér nýja fyrirkomulagið og leita til þjónustuver Árborgar ef spurningar vakna.

Photos from Byggðasafn Árnesinga - Árnessýsla Heritage Museum's post 22/06/2026

Við hvetjum ykkur öll til að bera augum nýja og glæsilega sýningu í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka.

Byggðasafn Árnesinga - Árnessýsla Heritage Museum

22/06/2026

Þjónustu- og símaver lokar kl: 14.30

Í dag mánudaginn 22. júní lokar þjónustu- og símaver kl: 14.30.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Þjónustuver Árborgar

19/06/2026

Lokahelgi Hafsjór - Oceanus um helgina, síðustu tveir opnunardagarnir og margvíslegir viðburðir í boði um helgina.

Dagskrá Oceanus Stórsjór
Seinni sýningarhelgi
20/21 Juní 2026

20 júní Laugardagur
13.00-18.00 Sýningar eru opnar.
14.00 Malinche Performance, Yuliana & Lilja María Ásmundsdóttir, The Black POT Nesbrú.
Malinche er holdgervingur þess margræða, þar sem menningarheimar mætast og bræða
saman skilning, þekkingu, tengsl og vald svo úr verður dýrðlegur vellingur.
“Hvorki sól né snjór,
hvorki hér né þar
aðeins þræðir nýrrar sýnar,
fléttaðir í rætur sjálfsins.

Malinche embodies the complexity of hybrid identity, a space where cultures meet and merge -
blending understanding, knowledge, connection, and power into a rich and
wondrous whole.
Malinche is the utopia, woven from wool, where everyone is welcome regardless of origin,
background, or race or origins.
“Neither sun nor snow, neither here nor there -
just threads of new knowledge,
braided into the roots of being"

Performer: Yuliana Palacios
Tónlist og performer: Lilja María Ásmundsdóttir
Innsetning og búningahönnun: Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir

15.00 “Minning” Gjörningur í fjörunni vestan við bryggjuna, hjá innsiglingarmerkjunum þremur. Hulda Ólafsdóttir
Ægivald hafsins, sem geymir lífsbjörg íbúanna við brimvarða ströndina í skauti sér, er algert. Það gefur líf og það tekur líf! Brimgarðurinn er sá varnarmúr sem erfiðast er að sigrast á þegar hafið verður hamslaust og sýnir klærnar.
Með þessum gjörningi heiðrum við minningu þeirra sjómanna sem létu lífið í átökum við hafið.
Minningin lifir.

16.00 Sýningarrölt með leiðsögn. Byrjum í Óðinshúsi við Búðarstíg. Gangan tekur u.þ.b. klukkutíma.
17.00 Ashes Performance Dario Massarotto, Þurrkhjallur (bak við Byggðasafnið)
Ashes A performance about purification and rebirth, the duality of destruction and renewal. The physical remnant of ash (the past) meets the spiritual ignition of a new beginning (the future).

21 júní Sunnudagur
13.00-18.00 Sýningar eru opnar.
13.45 Sýningarrölt með leiðsögn. Byrjum í Óðinshúsi við Búðarstíg. Gangan tekur u.þ.b. klukkutíma.
18.30 Performance Suspended Light Samantha Claire Zaccarie & Hera Fjörd, from the Museum to the Church.
Dance walk sound poem, with Samantha and Hera from the Heritage Museum to the Church. Meeting point is at the stone sculpture “Created by nature touched by me” by Udaya Vir Singh made during first Oceanus 2022.
Dansganga hljóðljóð, með Samönthu og Heru frá Byggðasafninu að kirkjunni. Mæting er við steinskúlptúrinn „Skapað af náttúrunni snert af mér“ eftir Udaya Vir Singh sem var gerður á fyrsta Oceanus 2022.

19.30 Eyrarbakkakirkja
THE OCEAN HOLDS THE MOON concert & sound relations.
Sarah Lú, JFDR, Róshildur, Værð, KiraKira.
Sýningarstaðir; Óðinshús, Þurrkhjallur ( bak við Byggðasafnið), Rauða Húsið, Staður, Sjómaður við Stað, Gamla Kartöflugeymslan, The Black POT við Nesbrú, Íshúsið. Kort af stöðunum á www.oceanushafsjor.com Sveitarfélagið Árborg

18/06/2026

Leikhópurinn Lotta sýnir söngleikinn Litaland í Sigtúnsgarði á morgun 19. júní kl.17!
Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna.

Miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is.

Sýningin er styrkt af sveitarfélaginu Árborg.

Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 miða á verði 1.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 16/06/2026

Vináttu í nærumhverfi á Strandheimum fagnað fjórða árið í röð

Leikskólinn Strandheimar hefur skapað þá hefð að fagna vináttuverkefni elsta árgangs barna á Eyrarbakka og Stokkseyri með því að eyða heilum degi saman í útikennslu og leik í Hallskoti í lok skólaárs.

Þetta er ævintýralegur dagur fyrir börn og starfsfólk þar sem sköpunarkraftur, gleði og frelsi ráða för. Börnin fara í skemmtilega leiki úti í náttúrunni, byggja kofa, veiða, hvíla sig í hengirúmum, tálga ofl. Þau grilla saman hádegisverðinn og eiga yndislega samveru.

Verkefnið Vinátta í nærumhverfinu felst í því að elstu börn leikskólans hittast einu sinni í mánuði, til skiptis á Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri og verja þar deginum saman við leik og störf. Til að fagna velgengni verkefnisins, vináttu og tengsla barnanna er skemmtileg hefð að eyða deginum saman í ævintýraskóginum Hallskoti enda staðurinn tilvalinn til útikennslu.

Want your business to be the top-listed Government Service in Selfoss?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Austurvegi 2
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00