Frístundastyrkir Bláskógabyggðar 2026
Bláskógabyggð veitir frístundastyrki árið 2026 til að styðja við þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu frístundastarfi, svo sem í íþróttum, listum og öðru tómstundastarfi.
👧🧒 Hverjir eiga rétt?
Öll börn og ungmenni á aldrinum 0–17 ára sem eiga lögheimili í Bláskógabyggð.
💰 Upphæð styrks:
Allt að 60.000 kr. á hvert barn á árinu 2026, eða að hámarki sem nemur þátttökugjöldum.
📝 Hvernig er sótt um?
Styrkurinn er nýttur í gegnum rafrænt frístundakerfi (Hvata/Sportabler). Í þeim tilvikum sem slíkt kerfi er ekki í boði er hægt að skila inn kvittunum til sveitarfélagsins.
🌱 Markmið styrksins er að tryggja jöfn tækifæri barna og ungmenna til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og stuðla að vellíðan, heilsu og félagslegri þátttöku.
📄 Nánari upplýsingar og reglur má finna á heimasíðu Bláskógabyggðar.
👉 Bláskógabyggð hvetur foreldra og forráðamenn til að kynna sér styrkinn og nýta sér þetta mikilvæga úrræði.
Ungmennafélag Biskupstungna
Ungmennafélag Biskupstungna
13/06/2026
Styttist í leikjanámskeiðið :)
Það verður gaman að fá að vera með ykkur krakkar.
12/06/2026
11/06/2026
Greifarnir í Aratungu 15 ágúst
11/06/2026
Fjársjóðsleit
Leikir
Sull og fjör
Ennþa laust fyrir börn í 1 til 7.bekk!!!
07/06/2026
Rúsínan í pylsuendanum verður eflaust þegar Greifarnir mæta og halda alvöru sveitaball í Aratungu 15.ágúst.. það verður flott dagskrá sama dag hér í sveitinni enda sveitahátíðin Tvær úr Tungunum sama dag :)
Miðasala a tix.is
06/06/2026
Flottur hópur á Héraðsleikum HSK á Laugarvatni á fimmtudaginn ...áfram ungmenni !!
05/06/2026
Á morgun verður síðasti fjölskyldu tíminn okkar fyrir sumarið.
Við hvetjum foreldra þó til að halda áfram að koma saman og eiga stundir með börnunum sínum. Tilvalið að hittast á leiksvæði leikskólans og hver veit kannski getum við farið í skógarferð í Haukadalsskóg.
25/05/2026
Áfram ungmenni !
Styðjum ungmennastarfið sem er að blómsta í Reykholti !
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Aratunga
Selfoss
806
