23/06/2026
💦 Endurbótum á vatnsrennibraut Sundlaugar Stykkishólms er nú lokið!
Undanfarna daga hefur verið unnið að breytingum á efri hluta brautarinnar þar sem byggt hefur verið yfir hana til að auka öryggi og gera upplifun gesta enn betri. Jafnframt hefur verið komið fyrir skemmtilegum dagsbirtuhringjum sem setja nýjan svip á ferðina niður brautina. 🌈
Við minnum jafnframt á mikilvægi þess að kynna sér og virða þær öryggisreglur sem gilda um notkun brautarinnar svo allir geti notið hennar á öruggan hátt.
Nú er allt tilbúið fyrir sumarið og við hlökkum til að sjá íbúa og gesti njóta Sundlaugar Stykkishólms og nýuppfærðrar vatnsrennibrautar í sumar! 💦🏊♂️🌈☀️
Sjá nánar um framkvæmdina og myndir af nýuppfærðri vatnsrennibraut í fréttinni hér fyrir neðan. 👇
Framkvæmdum við vatnsrennibraut sundlaugar lokið
Framkvæmdum við endurbætur á vatnsrennibraut Sundlaugar Stykkishólms lauk í dag en þær hófust 22. júní. Markmið framkvæmdanna var að auka bæði öryggi og up
23/06/2026
🌟 Laus staða í Leikskólanum í Stykkishólmi 🌟
Leikskólinn í Stykkishólmi leitar að leikskólakennara í 100% starf frá og með 17. ágúst 2026.
Í leikskólanum er boðið upp á fjölbreytt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem fagmennska, samstarf og vellíðan eru í fyrirrúmi. Leikskólinn er góður vinnustaður þar sem virðing, gleði og kærleikur eru höfð að leiðarljósi.
📅 Umsóknarfrestur er til 9. júlí 2026.
Nánari upplýsingar um starfið má finna í fréttinni hér fyrir neðan.
🤝Deilið endilega með þeim sem gætu haft áhuga.
Nánar hér 👇
Laus staða leikskólakennara í Stykkishólmi
Leikskólinn í Stykkishólmi býður upp á fjölbreytt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem fagmennska, samstarf og vellíðan eru í fyrirrúmi. Leikskól
12/06/2026
🏋️♀️ Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram 13. og 14. júní þar sem margar af sterkustu konum landsins taka á honum stóra sínum. Um er að ræða kraftakeppni kvenna sem fram fer í Stykkishólmi og Snæfellsbæ. Keppnin hefur vakið mikla lukku en hún er nú haldin í þriðja sinn.
🏋️♀️ Keppt verður í Stykkishólmi laugardaginn 13. júní og hefjast leikar kl. 12:00 við Stykkishólmskirkju. Íbúar og aðrir gestir hvattir til að mæta og fylgjast með þessari mögnuðu keppni.
Aflraunakeppnin Fjallkonan
Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram 13. og 14. júní þar sem margar af sterkustu konum landsins taka á honum stóra sínum. Um er að ræða kraftakeppni kvenna
11/06/2026
💦 Svæðisgarðurinn Snæfellsnes stóð, í samstarfi við sveitarfélagið, fyrir notalegri kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní síðastliðið. Boðið var uppá ljúffengan rabbabaradrykk með ölkelduvatni og lifandi tónlist.
😎 Það voru frændurnir Bæring Nói Dagsson og Bæring Breiðfjörð Magnússon sem sáu um að skemmta sundlaugargestum með ljúfum tónum. Rúmlega 80 manns gerðu sér ferð í sundlaugina og hlustuðu á þessa ungu og efnilegu tónlistarmenn.
☝ Viðburðurinn var hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Notaleg kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes stóð, í samstarfi við sveitarfélagið, fyrir notalegri kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní síðastliðið.
11/06/2026
🌑 Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
😎 Sveitarfélagið Stykkishólmur afhenti á dögunum leik- og grunnskóla sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum.
☀️ Með gleraugunum vill sveitarfélagið tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruatburði á öruggan hátt. Skólarnir hafa nú þegar komið gleraugunum til nemenda sinna.
ℹ️ Á vefnum solmyrkvi.is má finna allar helstu upplýsingar um almyrkvann, þar á meðal sérstakar upplýsingar um öryggi augna.
Sveitarfélagið gefur börnum sólmyrkvagleraugu
Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, h
10/06/2026
🚗 Gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi hefst á ný mánudaginn 15. júní nk. Tilgangur gjaldtökunnar er sem fyrr að bæta nýtingu bílastæða, stýra umferð og tryggja tekjur til að viðhalda og bæta aðstöðu á svæðinu.
ℹ️ Í kjölfar samráðs við ferðaþjónustuaðila á svæðinu hefur sú breyting orðið á fyrirkomulagi gjaldtöku að gjaldskylda er aðeins á stóra bílaplaninu við minnismerkið á heimleið, bílastæðum undir Súgandisey og á Stykkisbryggju, þar sem rútustæði eru. Ekki verður gjaldskylda á skammtímastæðum fyrir framan hafnarvogina. Þá hefur sveitarfélagið leigt ferðaþjónustuaðilum á hafnarsvæðinu bílaplanið þar sem söluvagnarnir standa en þar munu þeir ferðaþjónustuaðilar bjóða viðskiptavinum sínum frí bílastæði.
🅿️ Greinargóðar merkingar vegna gjaldtökunnar verða settar upp á hafnarsvæðinu að morgni dags 15. júní.
👇 Sjá nánari upplýsingar hér að neðan.
Gjaldtaka á hafnarsvæði hefst á ný 15. júní
Gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi hefst á ný mánudaginn 15. júní nk. Tilgangur gjaldtökunnar er sem fyrr að bæta nýtingu bílastæða, stýra u
10/06/2026
✅ 49. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fór fram fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. Þetta var fyrsti fundur eftir sveitarstjórnarkosningar og því fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar. Á dagskrá fundar voru að mestu hefðbundin mál í kjölfar kosninga.
ℹ️ Skipaðir voru nefndarmenn í skipulagsnefnd, skóla- og fræðslunefnd, kjörstjórn og fulltrúa sveitarfélagsins á vettvangi Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Þá var Björn Ásgeir Sumarliðason kjörinn forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs var kjörinn Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir
🤝 Á fundinum var Jakob Björgvin S. Jakobsson endurráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Ráðningin var samþykkt samhljóða.
🎬 Fundir bæjarstjórnar eru sendir út í beinni útsendingu á youtuberás sveitarfélagsins og eru einnig aðgengilegir þar eftir á.
Ný bæjarstjórn tekin til starfa
49. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fór fram fimmtudaginn 4. júní síðastliðin. Þetta var fyrsti fundur eftir sveitarstjórnarkosningar og því fyrsti fundu
08/06/2026
💦 Notaleg kvöldsundstund verður í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní milli kl. 20:00 og 22:00. Notaleg samvera, lifandi tónlist og hressandi drykkur í boði fyrir viðstadda. Um er að ræða notalega samverustund sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna. Athugið að frítt er í sund á þessum tíma.
☝ Viðburðurinn er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Kvöldsundstund í Sundlaug Stykkishólms
Notaleg kvöldsundstund verður í Sundlaug Stykkishólms þann 9. júní milli kl. 20:00 og 22:00. Notaleg samvera, ljúf tónlist og hressandi drykkur í boði fyri
07/06/2026
⚓️ Sjómannadagskveðja frá Sveitarfélaginu Stykkishólmi
Sveitarfélagið Stykkishólmur sendir öllum sjómönnum, fjölskyldum þeirra og þeim fjölmörgu sem starfa við sjávarútveg og hafsækna starfsemi sínar bestu kveðjur og þakkir.
Saga Stykkishólms og samfélaganna við Breiðafjörð er samofin sjónum. Kynslóðir sjómanna hafa lagt grunn að atvinnulífi, velferð og uppbyggingu samfélagsins með dugnaði, þrautseigju og hugrekki. Á þessum degi minnumst við einnig þeirra sem hafa farist á sjó og sendum aðstandendum þeirra hlýjar hugsanir og kærleikskveðjur. 🫶
Við þökkum öllum þeim sem sækja sjóinn og vinna störf tengd hafinu fyrir þeirra mikilvæga framlag til samfélagsins og þjóðarinnar allrar.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs Sjómannadags. ⚓️🌊
Sjá dagskrá sjómannadags í Stykkishólmi hér fyrir neðan
👇
Dagskrá fyrir Sjómannadag Stykkishólmi 2026 sunnudaginn 7. Júní. 🇮🇸
Blóm verða lögð að minnisvarða látinna sjómanna í Stykkishólmskirkjugarði klukkan 10:15 og þaðan haldið að minnisvarðanum við bryggjuna þar sem einnig verða lögð blóm kl. 10:30.
Sjómannadagsmessa klukkan 11 í Stykkishólmskirkju. Sr. Ursula Árnadóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Björgunarsveitin Berserkir tók að sér að panta og leggja blómsveiga við minnisvarðana, þau sem vilja leggja því lið er bent á söfnunarreikning fyrir sjómannadag, reikningurinn er í vörslu Berserkja.
0357-22-008536
610180-0789
Það sem safnast umfram kostnað við blómsveigana fer í viðhald á minnisvarðanum niðrá höfn, m.a. kaup á ljóskösturum sem eru ónýtir.
Björgunarsveitin Berserkir óskar öllum gleðilegs sjómannadags og sérstaklega til fólks sem starfar á og við sjó 🇮🇸