19/05/2026
Kærar þakkir, enn og aftur fyrir höfðinglega gjöf...Oddfellow stúkurnar í Vestmannaeyjum 🚒🥰
Styrkveitingar Oddfellow í Vestmannaeyjum - rúmlega 20.000.000 kr
Árið 2025 fengu Oddfellowstúkurnar Herjólfur og Vilborg í Vestmannaeyjum úthlutað upphæð úr Styrktar-og Líknarsjóði Oddfellowa til að styrkja lík
09/01/2026
ÚTKALL HEIMAKLETTUR
Í dag þurftu tveir vaskir fjalla slökkviliðsmenn að hlaupa upp á Heimaklett og slökkva þar í sinueldi sem hafði kviknað út frá friðarkertum/útikertum sem búið var að koma fyrir víðsvegar um klettinn(eins og oft er gert við hátíðleg tækifæri).
Það vann vel með okkur hvað veður var stillt og enn bjart af degi og útbreiðslan því hæg en þetta er enn ein áminningin um það hversu hættulegt það er að vera með opinn eld nálægt þurrum gróðri.
Í þessum skrifuðu orðum er nú þegar farið að skjóta upp flugeldum víðs vegar um bæinn vegna þrettándagleðinnar sem haldin verður í kvöld.
ENN OG AFTUR.....farið varlega og sýnið skynsemi í umgengni við flugelda og útikerti...OG......EKKI SKJÓTA UPP NEYÐARSÓLUM Í KVÖLD.....
Sinubruni í Heimakletti - myndband - Eyjafréttir
Sinubruni hefur brotist út í Heimakletti. Eldurinn logar í gróðri á toppi fjallsins og sést vel víða um bæinn. Heimaklettur er hæsta fjall Vestmannaeyja, stendur 279 metra yfir sjávarmáli og er eitt helsta kennileiti eyjanna. Eldurinn er því mjög áberandi og hefur vakið athygli íb...