Sveitarfélagið Vogar

Sveitarfélagið Vogar

Share

Sveitarfélagið Vogar er vinalegur bær á Suðurnesjum
Heimasíðan er www.vogar.is Þann 1. Nýtt sveitarfélag varð til, en byggir á gömlum og traustum grunni.

janúar 2006 var nafni Vatnsleysustrandarhrepps breytt í Sveitarfélagið Vogar, samhliða því að stjórnskipan sveitarfélagsins var breytt. Sveitarfélagið Vogar er næst landstærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum og nær yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga. Í sveitarfélaginu bjuggu rúmlega 1.200 manns þann 1. desember 2007. Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt síðastliðin ár, enda í Vogum mjög fjölskylduvænt

Photos from Sveitarfélagið Vogar's post 19/06/2026

17. júní haldinn hátíðlegur 🇮🇸

Þann 17. júní voru veitt menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga og styrkir úr Mennta, menningar- og afrekssjóði veittir þeim þremur nemendum sem voru með hæstu meðaleinkunn við útskrift úr Stóru-Vogaskóla.

Hjónin Helgi R. Guðmundsson og Júlía H. Gunnarsdóttir hlutu heiðursmenningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2026. Í gegnum árin hafa þau verið órjúfanlegur hluti af samfélaginu okkar og lagt sitt af mörkum með elju, sköpunargleði og miklum samfélagsanda. Margir tengja þau sérstaklega við Fjölskyldudagana, þar sem garðurinn þeirra hefur ár eftir ár verið einstaklega glæsilega skreyttur og orðið órjúfanlegur hluti af hátíðarstemningunni.

Á hverju ári hafa þau opnað garðinn sinn fyrir gestum og gangandi, þannig að allir geti notið þeirrar vinnu og sköpunar sem þar liggur að baki. Þar hafa jafnt börn sem fullorðnir staldrað við, notið skreytinganna og tekið þátt í þeirri einstöku stemningu sem þau hafa skapað í gegnum árin.

Þá fékk samstarf félagsstarfs aldraðra í Álfagerði og Heilsuleikskólans Suðurvalla ,,brú á milli kynslóða” menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2026. Í verkefninu unnu börn af leikskólanum, undir leiðsögn smíðahóps eldri borgara, að því að smíða fugla úr tré. Úr varð fjölbreyttur og litríkur fuglahópur, sem síðar var settur upp á sýningu.

Verkefnið er sérstaklega dýrmætt vegna þess að það leiðir saman kynslóðir, skapar samtal, gleði og sameiginlega reynslu. Börnin fengu að læra af eldri kynslóðinni, kynnast handverki og njóta samveru og um leið varð til eitthvað fallegt sem samfélagið allt g*t notið.

Þeir þrír nemendur með hæstu einkunn við útskrift úr Stóru-Vogaskóla fengu afhenda styrki úr afrekssjóði sveitarfélagsins. Það voru þeir Eric Daniel Eiríksson, Sverrir Björgvin Gunnarsson og Ragnar Ingi Pétursson.

Við óskum verðlauna- og styrkhöfum til hamingju og óskum þeim velfarnaðar í leik og störfum.

https://www.vogar.is/is/stjornsysla/vogar/frettir/17-juni-haldinn-hatidlegur

Mennta-, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga 19/06/2026

Mennta-, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.

Nemendur sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á haustönn 2025 og vorönn 2026, geta sótt um styrk.

Umsóknareyðublað má finna á íbúagátt sveitarfélagsins .

Með umsókninni skal fylgja, í viðhengi, staðfesting frá skóla um námi sé lokið með útskrift.

Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2026.

Mennta-, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga Mennta-, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.

18/06/2026

Komið við og takið bók með ykkur í sumarfríið😀opið til 17:00 í dag

16/06/2026

Aftur kominn þriðjudagur og þá er FÖNDUR FYRIR Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga 🥳❤️💛💚💙

Aftur er kominn þriðjudagur og þá er föndurdagur.

16/06/2026

🇮🇸 🇮🇸 🇮🇸
17. júní verður haldinn hátíðlegur í Sveitarfélaginu Vogum
Hátíðardagskrá í Tjarnarsal 🙌
📃 14:00 Ávarp bæjarstjóra
🤹 14:05 Sirkus Íslands
🎖️ 14:30 Menningarverðlaun veitt
🤵‍♂️ 14:40 Tónlistaratriði - Gissur Páll stórsöngvari
🪄 15:00 Töframaður

Á útisvæði við Stóru-Vogaskóla frá kl. 14-16 verða hoppukastalar, andlitsmálning og kajakar fyrir yngri kynslóðina 🏰🚣‍♂️😻

Boðið verður upp á kaffi og tertur í Tjarnarsal ☕🍰

Höldum þjóðhátíðardaginn saman í heimabyggð! 🇮🇸

Ný bæjarstjórn tók til starfa í Vogum 12/06/2026

Nýkjörin bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga kom saman til síns fyrsta fundar fimmtudaginn 11. júní 2026.

Á fundinum tóku nýir bæjarfulltrúar formlega til starfa í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru 16. maí. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra hlaut þrjá bæjarfulltrúa, A-listi Fyrir samfélagið tvo, E-listi Strandar og Voga einn og L-listi Lista fólksins einn.

Kristinn Björgvinsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar og Birgir Örn Ólafsson formaður bæjarráðs.

Bæjarstjórn gekk jafnframt frá skipan í fastanefndir sveitarfélagsins, ráð og stjórnir og samþykkti ráðningarsamning við Björgu Ástu Þórðardóttur sem bæjarstjóra Sveitarfélagsins Voga fyrir kjörtímabilið 2026–2030.

Á fundinum var lögð fram yfirlýsing um málefnasamning D-lista, E-lista og L-lista um samstarf á kjörtímabilinu 2026–2030. Þar kemur fram að samstarfið byggi á breiðum grunni og að lögð verði áhersla á traustan rekstur, öfluga þjónustu, skýra forgangsröðun, aukið gagnsæi og gott samtal við íbúa.

Eitt af fyrstu verkefnum nýrrar bæjarstjórnar verður áframhaldandi vinna við að fjölga leikskólaplássum. Á fundinum var fjallað um viðauka við fjárhagsáætlun vegna kaupa og uppsetningar á færanlegum kennslustofum fyrir Heilsuleikskólann Suðurvelli.

Fundargerð bæjarstjórnar er aðgengileg á vef sveitarfélagsins en unnið er að því að koma fylgiskjölum fundarins á vefinn.

Ný bæjarstjórn tók til starfa í Vogum Nýkjörin bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga kom saman til síns fyrsta fundar fimmtudaginn 11. júní 2026.

11/06/2026

🇮🇸 🇮🇸 🇮🇸
17. júní verður haldinn hátíðlegur í Sveitarfélaginu Vogum

Hátíðar dagskrá í Tjarnarsal 🙌

📃 14:00 Ávarp bæjarstjóra
🤹 14:05 Sirkus Íslands
🎖️ 14:30 Menningarverðlaun veitt
🤵‍♂️ 14:40 Tónlistaratriði - Gissur Páll stórsöngvari
🪄 15:00 Töframaður

Á útisvæði við Stóru-Vogaskóla frá kl. 14-16 verða hoppukastalar og fleira skemmtilegt fyrir yngri kynslóðina 🏰🎈

Boðið verður upp á kaffi og tertur í Tjarnarsal ☕🍰

Höldum þjóðhátíðardaginn saman í heimabyggð! 🇮🇸

11/06/2026

💙 Slökun í vatni með Aqua Jóga
📍 Íþróttamiðstöðin í Vogum
📅 Jónsmessa 24. júní

Sjá nánar ⬇️

✨ Slökun í sundlauginni í Vogum á Jónsmessunni

💙 Slökun í vatni með Aqua Jóga
📍 Íþróttamiðstöðin í Vogum
📅 Jónsmessa 24. júní

Á Jónsmessunótt er sagt að mörkin milli hins sýnilega og ósýnilega verði örlítið þynnri. Þetta er nótt kyrrðar, birtu og töfra.

Laugin verður hituð upp og fáið þið allan þann búnað sem þarf til að fljóta áreynslulaust í dýrmæta vatninu okkar á meðan slakandi tónlist og andrúmsloft hjálpa þér að sleppa tökunum og njóta augnabliksins.

✨ Kyrrð fyrir hugann
✨ Hvíld fyrir líkamann
✨ Næring fyrir sálina
✨ Töfrandi stund á björtustu nótt ársins

💧 Hentar öllum sem vilja slaka á og njóta.

📞 Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Aqua Jóga
💰 Verð: 1.500 kr.

Innifalið er aðgangur í laugina og heitt seremóníu kakó.

Leyfðu vatninu að halda utan um þig á Jónsmessunótt 💙

Want your business to be the top-listed Government Service in Vogar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Iðndalur 2
Vogar
190

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:30
Tuesday 08:00 - 15:30
Wednesday 08:00 - 15:30
Thursday 08:00 - 15:30
Friday 08:00 - 12:30